jæja sælt veri fólkið
ákvaða
að skella inn einu bloggi svona til tilbreytingar...
ég er
sem sagt alltaf í skólunum og svona... er núna í Vöðvafræði 102 og
það er sko erfiðasti framhaldskólaáfangi á landinu... og hann er
þannig upp bygður að maður þarf að læra upptök, festur og latneskt
heiti vöðvana og hvernig krafstefna þeirra er s.s. hvaða liðamót
þeir hreyfa, s.s. frekar töff áfangi
svo er það þannig að maður
tekur 5 lotupróf sem gilda sem lokapróf og ef maður fellur þá
hefur maður einu sinni rétt á að taka próf upp... og ef maður
fellur aftur þá þarf maður að taka 100% lokapróf... þannig að það
er mjög mikilvægt að standa sig vel og læra eins og páfagaukur....
en alla vega erum við búin að taka 2 próf og í fyrra fékk ég 7, 6
eða eitthvað alla vega námundaðis það að 8 og var ég hæst, eða
svo var mér sagt, en svo í seinna prófinu fékk ég 8,55
stig sem námundast því upp í 9. ekki slæmur árangur það
ég er
bara nokkuð sátt með árangurinn og ætla mér bara að halda áfram á
sömu braut...
já
annars er bara voða lítið að frétta hjá mér. ég er bara alltaf að
nudda og í skóla og nudda og í skóla og nudda og já sofa smá og svo
nudda aðeins og í skóla og já var ég búin að segja ykkur að ég er
líka alltaf að nudda smá
já svona er líf mitt í hnotskurn þessa
dagana og jú svo er ég stundum að vinna smá...
núna er
ég ný búin að hækka hjá mér nuddið uppí 2500. ekki slæmt að fá smá
nestispening 
já og af
karla málum er ekkert að frétta, ég hef víst engan tíma núna fyrir
slíkt. neita því samt ekki að stundum væri ágætt að eiga einn kall,
kannski tvo
en nei nei mín er alveg hin rólegasta yfir þeim
málum... ef um nó annað að hugsa...
já en
svona úr karla málunum og yfir í eitthvað allt annað
Diddi og
Siri ætla að reyna að flytja inn núna um næstu helgi... já karlinn
er búin að vera alveg askoti seigur... er núna að klára að mála,
setja flísar á gólfin og setja upp innréttingar, svo skildst mér að
það eigi að parketleggja allt á laugardagsnóttina... ég held reynda
að hann sé svolítið bilaður að ætla sér að flytja inn núna um
helgina, en það er hans mál...
já jæja
ætli þetta sé ekki orðið gott í bili
þar til
næst elskurnar
Speedy
gonesales kveður með fleygu orðunum
Flest verður nýtnum að
notum